fbpx

Ilmvötn

Eitt sem ég er alltof léleg við að gera er að prófa og uppgötva ný ilmvötn – ef ég ynni í hins vegar í víkingalottói þá myndi ég fara í einn góðan innkaupaleiðangur í ilmvatnsdeildina í Hagkaup og fjárfesta í nokkrum fallegum glösum til að skreyta inná baði hjá mér með!

Það er þó búið að gerast heilmikið í þessum efnum á síðustu vikum því 2 nýir og gullfallegir ilmir hafa bæst í safnið!Þetta eru ilmnirnir Rain úr línunni Clean sem býður uppá ilmi sem minna þig á lyktina af hreinleika ég elska lyktina úti þegar það er rigning eða hún nýafstaðin og þessi ilmur minnir mig svo sannarlega á þá lykt. Í línunni eru líka ilmir sem heitir Warm Cotton – sá ilmur er næstur á kauplistanum hjá mér úr þessari línu! Ilmirnir eru vonandi á leið í sölu hér en annars fást þeir hjá Sephora. Svo er það nýr ilmur frá Boss sem heitir Nuit Pour Femme sem er innblásin af litla svarta kjólnum sem hangir inní skápunum hjá okkur öllum og við notum óspart því okkur líður svo vel í honum – elska hugsunina á bakvið ilminn. Æðislegur ilmur og engin önnur en Gwyneth Paltrow er andlit hans í auglýsingunum.

Ég er aðeins byrjuð að láta mig dreyma um ilmvatnsglösin sem ég ætla að nota til að skreyta baðið – fattaði eftir að ég var búin að raða þeim öllum hlið við hlið að ég er voða bleik greinilega….

1.Chloe L’Eau de Chloe.
2. Marc Jacobs Daisy
3. Valentino Valentina Eau de Parfum
4. Gucci Flora
5. Stella McCartney Lily
6. Dior Addict
7. Givenchy Seductive Sunkissed

Afmælið nálgast óðum svo ég sé fyrir mér að geta kannski sannfært einhvern sem vantar gjafahugmyndir til að gefa mér eins og eitt lítið glas:)

EH

Mánudagur...

Skrifa Innlegg

5 Skilaboð

  1. Aðalsteinn Kjartansson

    8. October 2012

    Ef við myndum vinna í Víkingalottói mættirðu alveg fara eitthvað annað en í Hagkaup að kaupa þér ilmvatn…

  2. Kristín Alma

    8. October 2012

    Ég á Marc Jacobs Daisy og mæli alveg með þessu ilmvatni, rosa góð lykt og fallegt skraut á baðherberginu :)

  3. Súsanna

    8. October 2012

    Gucci flora er æði

  4. Heiðdís

    8. October 2012

    Artica voru að hefja innflutning á sænsku CLEAN ilmunum, voru að koma til sölu í Hagkaupsverslunum í vikunni. Loksins á Íslandi :)

    • Reykjavík Fashion Journal

      8. October 2012

      Snilld! ég vissi einmitt að það væri í bígerð æðislegt að heyra að það er komið á hreint:D