fbpx

Í leit að innblæstri

InnblásturLífið Mitt

Þessa dagana er ég að skipuleggja frekar spennandi makeup myndatöku – sem er m.a. vegna nýja verkefnisins míns. Síðustu dagar eru búnir að fara leit að innblástri fyrir förðun, hár og stíliseringu – ásamt rölti um bæinn fyrir möguleg location. Ég er orðin fáránlega spennt fyrir þessu sérstaklega þar sem ég er að fara að vinna með ótrúlega flottum stelpum. Svo ég veit að útkoman verður æðisleg.SONY DSC SONY DSC

Ég settist með fullt af blöðum, tölvuna og tebolla á Te & Kaffi í gær. Innblásturinn er fundinn og nú er bara að hefja næsta skref það er að ákveða hvaða vörur ég ætla að nota…. – hér með óska ég sjálfri mér góðs gengs við það ;)

EH

The Bling Ring

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Rakel Ósk

    26. August 2013

    Lúxusvandamál á hverju strái ;) Gangi þér vel