Undanfarið hef ég verið að uppgötva það að ég er farin að plana svolítið langt fram í tímann – þetta er eitthvað nýtt hjá mér. Í gær eyddi ég smá tíma í að finna út hvar ég gæti nálgast svona falleg ljósakör eins og eru mjög vinsæl í Asíu. Þau fundust og ég sé fyrir mér að ef bumbi litli verði kominn í heiminn fyrir áramót þá sendum við upp svona ljósakör saman fjölskyldan litla á Gamlárs enginn hávaði eða mengun bara fegurð.
Ef þið eruð áhugasöm um að fá ykkur svona líka sendið þá bara á mig línu ernahrund@trendnet.is og ég sendi ykkur upplýsingar um hvar þið getið nálgast þau:)
EH
Skrifa Innlegg