fbpx

Finnskt Góðgæti

Blog

Ég á þónokkuð marga kollega sem eru búnar að skrifa um nýju finnsku búðina á Laugaveginum (hún er beint f. aftan 10 dropa) en ég ætla samt að minnast á hana;) Ekki er ég bara svo heppin að hún er beint á móti vinnunni minni – sem þýðir að ég er búin að fara 3svar í heimsókn – heldur selur hún dýrindis gott finnskt nammi. Ég á nefninlega eitt stk finnska tengdaömmu sem kemur alltaf með góðgæti heim þegar hún kíkir til Finnlands svo það var allri fjölskyldunni til mikillar gleði þegar við fundum grænu jelly kúlurnar og Fazer súkkulaði í búðinni. Svo ef þið eigið leið hjá þá mæli ég með því að þið grípið með ykkur extra gott og einstakt nammi sem allir þurfa að smakka:)

EH

MUNDI

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Anonymous

    9. May 2016

    Hvar er þessi búð?