Þið verðið að afsaka overflowið af myndum núna. En það er bara þannig að hún Donna hittir oftast beint í mark hjá mér með DKNY sýningunni sinni. Árið í ár er engin undantekning. Haustlínan hennar var öll rosalega dökk, svart, dökkblátt og leður. Hér sjáum við allt annað, hvíti liturinn er í aðalhlutverki, skemmtileg print koma aðeins inn og sterkur gulur litur sem ég hef ekki rekist á hjá öðrum hingað til – í bland við svart að sjálfsögðu. Ég hafði sérstaklega gaman af dressunum þar sem hún paraði svart og hins vegar hvítt maxi pils á móti hvítum og hins vegar svörtum bol, svo einfalt en samt svo töff!
Línan finnst mér alltaf representa ungum konum með stíl. Línan er góð blanda af hvers dags fötum og kvölddressum – sem gætu samt alveg virkað dags daglega. Klassísk föt með smá umph! Þetta er líka í fyrsta sinn sem hún sýnir vörur úr gallabuxnalínunni sinni með þessum fínu flottu – skemmtileg tilbreyting finnst ykkur ekki?
EH
Skrifa Innlegg