Einföld leið til að poppa aðeins uppá látlausa peysu er að setja bætur á olnbogana. Ég rakst á þessa skemmtilegu útfærslu þar sem bæturnar eru úr pallíettuefni. Peysan verður líka fínni fyrir vikið.
Það sem þið þurfið:
- Peysa.
- Efni til að gera bæturnar úr.
- Smjörpappír til að gera snið fyrir bæturnar.
- Nál, tvinni og nokkrir títuprjónar.
Góða skemmtun!
EH
Skrifa Innlegg