Mér líður hálf illa að gefa bara eina Dior pallettu ég væri svo mikið til í að gefa fleirum. En í staðin held ég gjafastuðinu áfram og í dag ætla ég að gefa einum heppnum lesanda glaðning frá Chanel!
Nafnið á vinningshafa Dior gjafaöskjunnar sjáið þið neðst í þessari færslu.
Eins og margar ykkar gera nú ráð fyrir eflaust þá fæ ég alls kyns kynningareintök af snyrtivörum sem eru fáanlegar hér á Íslandi. Ég nota lang flestar þeirra til að gera alls konar hugmyndir fyrir ykkur hér á blogginu og auðvitað líka fyrir umfjallanir í Reykjavík Makeup Journal. Í nýjasta tölublaðinu var umfjöllun um nýjasta andlit eins frægasta ilmvatns heims Chanel no 5. Sjálf nota ég ekki þennan ilm og því datt mér í hug að athuga hvort einhver lesandi noti hann eða leggja til að þið gætuð mögulega nýtt vörurnar sem ég ætla að gefa í dag sem smá aukajólaglaðning fyrir móður, ömmu, systur, dóttur, eiginkonu eða kærustu:)
Í fyrramálið dreg ég einn heppinn lesanda út sem fær í glaðning frá mér bodylotion og deodorant sprey frá Chanel með Chanel no 5 ilminum. Þetta eru alveg glænýjar og ónotaðar vörur bara svo það komi hér fram :)
Það sem þið þurfið að gera til að eiga kost á því að eignast þessa fínu snyrtibuddu er að setja like á þessa færslu – ef þið eruð ekki enn að fylgja mér á Facebook þá smellið þið á like á síðunni minni HÉR – og skiljið svo eftir smá athugasemd við þessa færslu. Ég dreg út heppinn lesanda í fyrramálið um leið og ég segi frá næsta glaðning sem ég ætla að gefa – nei ég er ekki búin enn!!
Hljómar þetta bara ekki vel :)
En að vinningshafa gærdagsins. Ég notaðist við random number generator og þegar ég dró voru komin 215 athugasemdir – vá!
Innilega til hamingju Ösp – þú mátt senda mér línu á ernahrund(hjá)trendnet.is með heimilisfangi svo ég geti sent þér vinninginn þinn :)
EH
Skrifa Innlegg