Færsla dagsins kemur seint inn því miður gafst ekki tími til að fara í þetta stúss fyr en prinsinn var sofnaður og ég náði ekki myndum af helmingnum… Það var samt eiginlega bara vegna þess að ég held að maðurinn minn hefði ekki verið hrifin af því að ég færi að draga allt saman fram. En mig langaði að sýna ykkur ofan í hvítu kassana sem ég sýndi ykkur um daginn og sýna ykkur makeup kittið mitt sem fer með mér útum allt. Þetta eru snyrtivörurnar sem ég nota mest og þið ættuð að hafa séð á síðunni minni síðustu vikur og mánuði – svo leynast nokrar þarna inná milli sem ég á ennþá eftir að segja ykkur betur frá!
Ég tek júlí fagnandi því nú er ég búin með fæðingarorlofið mitt og get farið að taka að mér verkefni uppá nýtt – þá fær taskan smá yfirhalningu – þrif og nýtt skipulag sem verður kærkomið ;) Ég ætla þó að vera áfram í smá fríi með stráknum mínum þar sem ég er í orlofi frá vinnunni fram til áramóta – þangað til verð ég að vinna í eigin verkefnum og í besta starfi í heimi – mamma hans Tinna.
Ég vild ég gæti sýnt ykkur mynd af fallega snyrtiborðinu mínu – en það á ég ekki söku plássleysis. Stuttu eftir að maðurinn minn hafð samþykkt kaup á slíku komumst við að því að lítill bumbubúi væri á leiðinni svo þau innkaup voru sett á pásu sökum plássleysis:( En ég vona að það sé ekki alltof langt í það að ég eignist svoleiðis fínerí!
Á morgun er það svo innblásturinn…
EH
Skrifa Innlegg