fbpx

Alexander McQueen – Dulúð Hvíldi Yfir Fyrirsætunum

Mér finnst þessi lína frá Alexander McQueen æðisleg! – það er svona nettur Zorro fílingur yfir þessu öllu og mér finnst fítusinn með að hylja andlit fyrirsætanna svolítið skemmtilegur þær eru alveg faldar þarna á bakvið svo þær virka allar eins og þetta sé bara sama fyrirsætan – þannig fá fötin að njóta sín því ekkert annað truflar augað.

Ég hvet ykkur til að skoða myndirnar vel og sérstaklega smáatriðin.

Smáatriðin skipta svo miklu máli og hér er svo sannarlega hugað vel að hverju og einu atriði. Ég fæ það alla vega á tilfinninguna að flíkurnar skipta allar alveg jafn miklu máli það er engin ein sem fær meiri athygli en önnur.

EH

Annað Dress

Skrifa Innlegg