Ég veit ekki með ykkur hinar bumbulínurnar þarna úti sem eruð komnar svipað langt og ég en ég er alla vega að verða svolítið þreytt. Sérstaklega af því biðin eftir fallega afkomandanum er orðin alltof erfið eftir að við skelltum okkur í þrívíddarsónar og á fæðingarundirbúningsnámskeið – sem ég mæli hiklaust með. Mér líður eins og ég sé vel undirbúin og líka bara andlega sem ég held að skipti lykilmáli þegar kemur að fæðingunni sjálfri.
Gærdeginum var eitt í afmæli hjá uppáhalds tveggja ára stráknum mínum en áður skelltum við okkur út til að taka eina fallega bumbumynd í haustlitunum hjá Elliðavatni.
Skyrta: Monki
Peysa: H&M
Sokkabuxur: Oroblu – elska All Colors ég næ þeim ennþá vel yfir bumbuna – hint fyrir ykkur hinar!
Skór: Vagabond
EH
Skrifa Innlegg