Nokkrar fallegar af desktopinu…
Allar eiga þær það sameiginlegt að vera í litunum svörtu og hvítu – það er alla vega mín skoðun að þetta séu litir, þó þeir séu heldur litlausir svona oftast.
Seinna í dag birtist loksins litaglaða færslan mín – sem inniheldur ráðleggingar sem þið getið nýtt ykkur til að velja liti á augnskuggum sem hæfa augunum ykkar. Þess vegna langaði mig eiginlega bara að koma með eina svart hvíta svona áður en hún birtist.
Mér finnst orðin hennar Grace eiga alltaf vel við og er góð áminning til manns sjálfs um að kannski horfa betur í kringum sig. Að við tökum eftir nýjum hlutum og sköpum okkar eigin smekk útfrá því hvað okkur finnst en ekki endilega finnast allt sem við heyrum frá öðrum eða lesum (að mínu bloggi undanskildu – djók;)). Sjálf heillaðist ég af Grace eins og margar ykkar eflaust þegar ég horfði á September Issue.
EH
Skrifa Innlegg