Ein af mínum bestu er í Kolaportinu á morgun, þið ættuð nú að kannast við hana héðan ELISABETGUNNARS.COM ég mæli hiklaust með því að þið kíkið til hennar því hún er bókstaflega að tæma fataskápinn sinn vegna flutninga milli landa svo þarna finnið þið samansafn af alls konar gersemum bæði nýlegum, vintage og ónotuðum! Ég fór í dag og hjálpaði til við að setja flíkur á herðatré – náðum ábyggilega að ganga frá sirka 30% – svo heldur fjörið áfram í fyrramálið. Mætið því vopnaðar seðlum klukkan 11 í Koló – þið munuð ekki sjá eftir því:)
EH
Skrifa Innlegg