Hér sjáið þið aðeins fleiri myndir af sumarlínunni hans Munda sem að mínu mati er gullfalleg og mín uppáhalds frá honum hingað til. Það sem mér finnst einstakt er að hann setur alltaf sinn listræna svip á hverja flík sem þarf ekki að vera of áberandi. Uppáhalds fylgihluturinn minn í þessari línu er beltið/hálsskrautið með ombre kaðlamunstrinu svo er skýjamunstrið í silkikjólunum eitt það fallegasta sem ég hef séð.Fatamerkið MUNDI var fyrst stofnað árið 2007 af Guðmundi Hallgrímssyni. Mundi vakti fyrst mikla athygli 19 ára fyrir Spaceman ullarpeysurnar sínar og var í kjölfarið fyrsti íslenski fatahönnuðurinn sem fékk að selja flíkurnar sínar í KronKron. Undanfarið hefur hann vakið mikla athygli fyrir stuttmyndirnar sínar og sú nýjasta sem hann frumsýndi á RFF The Journey, þar sem hann kynnti haustlínu sína fyrir 2012, fannst mér alveg bera af, en svo kæmi mér ekki á óvart að sú næsta muni slá öll met.Að vera einungis 24 ára og svona hæfileikaríkur segir mér bara það að hann eigi svo sannarlega framtíðina fyrir sér og ég hlakka bara til að fá að fylgjast með honum slá í gegn og sigra heiminn.
Sumarlínan er komin í búðina hans MUNDA á laugarveginum og auk þess er hún seld í verslunum um allan heim.
EH
Skrifa Innlegg