Mér finnst þetta undursamlegt safn fata. Ég vildi óska þess að ég gæti veirð stödd í H&M landi þegar fötin koma í verslanir – alla vega að einhver sem yrði þar myndi bjóðast til að kippa einni flík með;) – Litirnir og munsturinn eru undursamleg og ég verð alltaf spenntari og spenntari fyrir sumrinu. Takið sérstaklega eftir fallegu fylgihlutunum, hálsmenin, kragarnir og klútarnir allt ofboðslega fallegt.
EH
p.s. vona að þið hafið átt góðan konudag – hann átti ég alla vega, minn var fullur af óvæntu og skemmtilegu.
Skrifa Innlegg