fbpx

Annað Dress – Nýtt Hár!

Blog

Nýja fallega hárið mitt sem ég er ástfangin af og klárlega uppáhalds fylgihluturinn minn þessa dagana. Gamla hárið var orðið upplitað og flatt svo var ég bara orðin leið á því. Þessi dökki litur er mjög svipaður mínum eigin lit (kannski aðeins dekkri) og ég er ótrúlega ánægð með hann. Endarnir fá svo alltaf að vera ljósir sem hefur verið einkennið á hárinu mínu síðustu 6 ár! Ég fór til hennar Fíu á Sjoppunni og ég mæli hiklaust með henni – var búin að heyra bara góða hluti um hana og eftir þessa litun hef ég ekkert nema gott að segja um hana líka:)

Peysan er svo í miklu uppáhaldi en hún er að sjálfsögðu af ebay;)

Fyrsta sinn í alltof langan tíma sem hægt er að taka myndir úti eftir að við komum heim úr vinnunni en þá mátti ekki seinna vera því sirka 10 mín seinna var komið svarta myrkur.

EH

H&M SS2012

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Rakel Ósk

    7. February 2012

    Hey skvís, ætlaru að selja þessa hérna? Svaka flott. Er ekkert smá öfundsjúk að ég gat ekki farið með í þorrablótamakeupin í ár, alltaf svo gaman ;)

    • Erna Hrund

      7. February 2012

      Ég saknaði þín rosa mikið hefði verið fjör að hafa þig með! Það er alltaf næsta ár:* En því miður bara ein til í bili en ef ég finn aðra þá lofa ég að blikka þig. p.s. ég skulda þér Lipstain – hann bíður bara eftir næsta hittingi;)