fbpx

Varalitadagbókin #4

Blog

Í gær var ég með Color Riche varalit nr. 373, Magnetic Coral. Hann er æðislegur mjög mattur og með sterkum lita pigmentum. I like;)Gærkvöldið okkar fór svo í að moka snjó, rosa mikinn snjó. En eftir að hafa verið bíllaus í 2 daga náðum við að koma bílnum af veginum okkar og uppá mokaðan veg. Kópavogsbær nefninlega neitar að moka hjá okkur:( Við mokuðum alla þessa leið sem þið sjáið á myndinni og meirað segja örlítið lengra líka. Fengum tvo verkamenn í lið með okkur, pabba og Magga Val, sem stóðu sig meistaravel!

Hér er svo ein sem kærastinn minn hann gluggagægir tók. Eins og þið sjáið er ekki búið að taka niður jólaljósin ennþá en þau eru bara svo kósý í myrkrinu sem er úti:)

Eigiði góðan snjódag!

EH

Karl by Karl Lagerfeld

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Rakel

    26. January 2012

    Hæ skvísa, hvar er besta úrvalið af Maybelline varalitunum?:)

    • Erna Hrund

      26. January 2012

      ég myndi fara í t.d. stærri verslanirnar eins og Lyfju eða Hagkaup Smáralind eiga samt flestir að vera til á öllum sölustöðum – en svo er líka 50% afsláttur núna af nokkrum flottum litum hjá L’Oreal það eru einmitt L’Oreal standar líka inní þessum sömu búðum:)