Þá er verðlaunatímabilið mikla hafið:) Golden Globes hátíðin var haldin hátíðleg í gærkvöldi og þó svo margir hafi verið spenntir að sjá hverjir fengu verðlaun þá er ég ein af þeim sem skrolla framhjá því og fer beint að skoða kjólana og makeupið;) Ég er búin að velja svo mikið af fallegum kjólum að ég held að þetta endi í tveimur færslum:D
Julianne Moore hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi, hún er með svo fallegan klassískan stíl og mér finnst hún sjaldan hafa klikkað. Ég elska þegar rauðhærðar konur nota grænt hvort sem það er skart eða föt. Förðunin er stílhrein og flott og hún leyfir ljósu freknóttu húðinni sinni að njóta sín. Eitt af mínum uppáhalds makeup ráðum er að highlighta innri augnkrókinn með sanseruðum ljósum skugga þegar augnförðunin á að vera dökk. Það gerir það að verkum að augað minnkar ekki.
Michelle Williams geislaði á hátíðinni í gær, bókstaflega. Húðin á henni er svo falleg og heilbrigð að ég held að förðunarmerkin muni berjast um hana eftir þessa hátíð – svo fékk hún líka verðlaun fyrir túlkun sína á Marilyn;) Kjóllinn er látlaus og liturinn fer henni vel mér finnst hárbandið setja punktinn yfir i – ið, ætli stílistinn hennar hafi ekki nælt sér í smá inspiration frá 10. áratugnum.
Þessi kjóll er á mínum topp 3 lista, Dianna Agron er líka með heildarlúkkið alveg á hreinu. Það er oft smá áhættusamt finnst mér að vera með rauðan varalit við rauðan kjól en hér tekst henni það mjög vel og ég er ánægð að sjá að í staðin er augnförðunin látlaus og hárið uppsett svo kjóllinn fái að njóta sín.
Mér finnst fátt toppa kjólinn hennar Milu frá Óskarnum í fyrra þá finnst mér efri hlutinn á þessum svarta Dior kjól ótrúlega fallegur og þá sérstaklega hvernig hlýrinn fer á ská yfir bringuna á henni. Förðunin er einföld en til að koma í veg fyrir að hún sé of flöt þá er notaður mikill kinnalitur sem mér finnst alltaf skemmtilegt. Ég hefði nú samt viljað sjá hana brosa aðeins meira;)
Ætli Heidi Klum væri ekki til í að senda eitthvað af sólinni sem hún er greinilega búin að vera að njóta til okkar? Dýrka fallegu húðina hennar og nude lúkkið sem hún hefur ákveðið að taka alla leið bæði í vali á kjólnum og í förðununni og þá fær skartið svo sannarlega að njóta sín:)
More to come!
EH
Skrifa Innlegg