MAIA er staðsett neðarlega á Laugaveginum þar sem Kisan og Andersen & Lauth var. Þetta er ein af mínum uppáhalds verslunum og þó svo að ég versli kannski ekki mikið þarna þá rölti ég reglulega í gegnum búðina og dáist að fallegum flíkum. Hér eru flíkurnar sem ég féll fyrir í síðustu heimsókn.
Truflaður pallíettukjóll frá Alice & OliviaFallegar buxur frá Karl LagerfeldListi yfir merki sem eru fáanleg í versluninni og fallegur bolur frá McQ by Alexander McQueen.
Svo fyrir ykkur mömmurnar þá er eitt fallegasta barnafatamerki fáanlegt þarna – Wheat – þær kosta reyndar alveg sitt en þær eru á mjög fínu verði þegar það eru útsölur eins og einmitt núna ;)
EH
Skrifa Innlegg