fbpx

Snjóríkið Ísland

Blog

Dagurinn í dag er búinn að vera svolítið hektík byrjaði eldsnemma í morgun og fór í smá tökur með vinnunni. Skelltum okkur í Hvalfjörðinn, klifum lítið fjall, kveiktum á blysum og mikið fjör og rosa gaman. Svo útskrifaðist litli bróðir minn úr menntaskóla í dag mikið finnst mér ég nú orðin gömul þegar litli strákurinn er með jafn mikla menntun og ég…. reyndar þá er hann ekki með förðunargráðu;) En rosa gaman að hitta alla fjölskylduna svona einu sinni 5 mínútum fyrir jól. Nú er það bara innpökkunarkvöld með mínum uppáhalds Macaulay Culkin!

Hvalfjörðurinn

EH

Nýtt í Fataskápnum

Skrifa Innlegg