Kápa: Farmers Market
Bolur: Monki
Suttbuxur: Forever 21
Sokkabuxur: Oroblu Bordeaux 3
Skór: Vagabond
Hálsmen: eBay
Armband: eBay fæst HÉR
Helgin er búin að vera smá vinnuhelgi svona eins og flestar en í dag var rólegur daguri hjá okkur hjúunum og við kíktum á kaffihús niðrí bæ og í gær náði ég að fara í smá leiðangur með einni dúllu – að gefa öndunum brauð:)
Nú ætla ég reyndar að eiga mér smá rólega vinnustund og halda svo til mömmu og pabba og borða með þeim svo er ég farin að verða mjög spennt eftir næstu helgi því þá er 1. í aðventu og jólabarnið ég getur varla beðið eftir að hækka í græjunum og hlusta á uppáhalds jólaperlurnar og skreyta íbúðina – besta við að vera ekki skólastelpa er að ég þarf ekki að bíða eftir próflokum til að jólastússast! ;)
Svo eru það Frostrósir eftir bara 2 vikur – veiveivei:D
EH
Skrifa Innlegg