fbpx

Gærdagurinn Minn

Blog

Gærdagurinn minn var rosalega busy en samt svo æðislegur – hann byrjaði á double rainbow sem ég var að sjálfsögðu að taka myndir af og ég vil meina að þetta boði rosalega gæfuSvo var það beint í myndatöku fyrir Lakkalakk með Ásu, Kötu og Ásdísi Evu í Þjóðleikhúskjallaranum

Nýja fallega peysan mín – prjónuð marglituð með fjólubláum loðkraga – hversu kósý!

Svo kíkti ég á eina yndislega vinkonu sem átti afmælisdag í gær og heilsaði uppá fallega strákinn hennar sem var svo sniðugur að þegar mamma hans skrapp til útlanda í fjóra daga að byrja að labba!

Svo kíkti ég við í brjálæðið í Smáralind og gerðist svo fræg að mæta í Lindex! – stóð fyrst reyndar í röð fyrir utan – ótrúlega æðisleg búð! Verðin voru hlægileg og flíkurnar hver annarri fallegri:)

Svo brunaði ég heim og gerði mig ready til að fara að sjá minn heittelskaða keppa í Dans Dans Dans – og ég varð ekki fyrir vonbrigðum:) Ég hitaði fingurna uppá meðan hin dansatriðin voru í gangi og svo um leið og símakosningin byrjaði þá var sko kosið í tveim símum í einu!!! – Það og double rainbow skilaði þessum frábæru úrslitum en hann og Rakel voru kölluð fyrst upp um að þau væru komin áfram og þvílík gleði:D Takk allir fyrir stuðninginn og hjálpina við að koma þeim einu skrefi nær sigrinum;)

Eftir keppnina hittust keppendur kvöldsins heima hjá einni og þá var sko dansað og mikið fjör! Yndislegur dagur að baki og nú sit ég inní Lakkalakk á Skúlagötu og fylgist með annarri myndatöku og bíðið spenntar því nýja sendingin þeirra er æði!

EH

DANS DANS DANS....!!!

Skrifa Innlegg