Þá eru komnar myndir af nýju snyrtivörulínunni hennar Drew Barrymore. Línan heitir Flower – verð að segja að nafnið heillar ekki alveg – sem er sama nafn og á framleiðslufyrirtækinu hennar. Drew lagði mikla áherslu á að línan innihéldi gæðavörur á góðu verði. Engin vara er dýrari en $15 – skv. genginu á heimasíðu Borgun eru það 1950 kr.Þrátt fyrir að ég fái kjánahroll yfir nafninu þá held ég að ég reyni nú að verða mér úti um vörur til að prófa – maður verður víst að prófa allt þegar maður er makeup fíkill. Varalitur og maskari yrðu þá fyrir valinu. Mér finnst alltaf mikilvægt að merki sendi frá sér góðan maskara því það er jú makeup varan sem við notum oftast og gerum miklar kröfur til.
Línan er einungis fáanleg í verslunum Walmart í Bandaríkjunum svo ef ég finn ekkert á eBay þá blikka ég vini sem búa þar;)
EH
Skrifa Innlegg