Carine Roitfeld er búin að hafa nóg að gera síðan hú hætti sem ritstjóri franska Vogue. Samstarf hennar og verslunarinnar Barneys er búið að vera mikið í pressunni en hún er líka að fara að gefa út bók, Irreverent, sem kemur út núna 18. október. Í bókinni er samansafn af allskonar úrklippum úr Vogue bæði myndaþættir og forsíður, safn af persónulegum bréfum og myndum frá Roitfeld. Hún gerði m.a. guðdómlega myndaþætti með ljósmyndaranum Mario Testiona og nokkrir þeirra verða í bókinni. Ég er búin að lesa mér aðeins til um bókina og á Amazon er vitnað í Önnu Wintour og Karl Lagerfeld þar sem þau sögðu að ef maður lokaði augunum og ímyndaði sér hina fullkomnu frönsku konu þá væri það Carine.
Þetta verður án efa ótrúlega falleg bók, hér er smá preview.
Hér getið þið skoðað fleiri myndir:)
Hér er hægt að preorder-a bókina
Skrifa Innlegg