Nú hefur bæst við enn ein nýjung inná heimasíðuna og vefverslunina Asos. Nú ætla þau líka að gefa okkur makeup ráðleggingar og gera alls konar sýnikennslu myndbönd. Ég horfði á öll mynböndin í gær og þau eru ótrúlega sniðug. Þau eru stutt og nákvæm og innihalda engin óþörf smáatriði sem flækjast fyrir manni.
HÉR getið þið skoðað það sem er komið inná síðuna og ég hvet ykkur til að fylgjast með því þegar nýtt efni kemur inn því maður getur aldrei lumað á of mörgum makeup ráðum. Ég leyfi nokkrum frá Instagram síðu Asos að fylgja með.
Þetta neðsta kom mér skemmtilega á óvart og verður prófað við næsta tækifæri!
Góðan föstudag:)
EH
Skrifa Innlegg