fbpx

Nýtt Naglatrend?

Ég rakst á skemmtilegar baksviðsmyndir frá sýningu Alexis Mabile sem fór fram á tískuvikunni í París núna í byrjun ársins. Í þetta sinn voru það neglurnar sem komu mér í opna skjöldu. Þetta hefur mér aldrei dottið í hug að gera og aldrei séð áður – en skemmtileg hugmynd:Svartur gel eyeliner er settur á neglurnar í staðin fyrir naglalakk og þá kemur þessi skemmtilega áferð. Svo er ábyggilega sniðugt að setja umferð af glæru lakki yfir svo liturinn haldist nú á sínum stað og smitist ekki í fötin. Nýtt trend í tíma fyrir Airwaves;)

EH

Freebird

Skrifa Innlegg