fbpx

Cara Delevingne fyrir Chanel Resort

Ein vinsælasta, flottasta og mest áberandi fyrirsæta heimsins í dag situr fyrir í nýjustu herferðinni frá tískuhúsinu Chanel. Í auglýsingunum sínir hún nýjustu resort línu merkisins og í auglýsingunum á hún að vera nútíma Marie Antoinette. Tískumiðlarnir virðast vera að missa sig yfir Cöru og auglýsingunum og segja hana hafa tekið við af Keiru Knightley sem drottning Chanel – ég veit nú ekki hvort ég myndi taka svo sterklega til orða en fallegar eru auglýsingarnar eins og þið sjáið hér:Fatnaðurinn og litirnier í resort línunni frá Chanel eru gullfallegir og jakkinn sem liggur á stólbakinu á efri myndinni er alveg dýrðlegur þó svo ég hefði nú alveg viljað sjá fyrirsætuna frekar í honum – hálfkjánalegt að láta hann bara liggja þarna;)

En fleiri fréttir af Cöru því hún hefur aðeins verið að prófa sig áfram í kvikmyndaheiminum en hún fer með pínulítið hlutverk í myndinni Anna Karenina sem var frumsýnd fyr í haust – en þar leikur Keira Knightley einmitt aðalhlutverkið.

Það er gaman að sjá hvað Cöru gengur vel í fyrirsætuheiminum því stúlkan er gullfalleg og voða viðkunnaleg á myndum. Systir hennar Poppy virðist síðan fylgja fast á hæla litlu systur hennar því hún sat fyrir í pre fall 2012-13 herferðinni fyrir Louis Vuitton og er í sérstöku uppáhaldi hjá yfirhönnuði merkisins Marc Jacobs. Svo við munum líklega sjá miklu meira frá Delevingne systrum í framtíðinni!

EH

Drew með sitt eigið makeup merki

Skrifa Innlegg