fbpx

Dýrindis Skart

Katie Gallagher er hönnuður sem hefur verið að vekja mikla athygli á síðustu árum. Skvísurnar Lady Gaga og Daphne Guinness hafa t.d. sést í fötum frá henni. En það voru ekki fötin úr nýjustu línunni henntar sem kölluðu sterkt á mig heldur var það skartið sem ég féll fyrir, hún og skartgripahönnuðurinn Megan Isaacs hönnuðu það saman. Skartið minnti mig á hreindýramosa og mér fannst það svo skemmtilega óvenjulegt. En ég læt myndirnar frá síðustu sýningu hennar tala sínu máli!Mér finnst þessi armbönd eða hanfabönd sérstaklega skemmtileg ég kolféll fyrir einu slíku á síðasta ári sem Nicole Sherzinger skartaði í einum þættinum af X factor USA – þið sem hafið fylgst með blogginu í smá tíma munið kannski eftir því.
Þessi armbönd eða handabönd kallast handlets á ensku svo ef þið eruð jafn hrifnar og ég þá er það bara eBay. Annars verður hægt að fá armböndin hennar Katie í vefversluninni hennar sem opnar í byrjun nóvember HÉR.

EH

30 vikur og 4 dagar

Skrifa Innlegg