Þið sem hafið fylgst með blogginu í smá tíma munið kannski eftir því þegar ég var að láta mig dreyma um fallega silki skyrtu frá Zöru sem ég hafði séð í júní í DK – þegar við unnustinn kíktum þangað aftur í ágúst þá beið ein skyrta á útsöluslánni akkurat í minni stærð – á einungis 99 danskar krónur! Ég klæddist henni á lokakvöldinu á Elite Modellook Iceland keppninni sem fór fram fyrir helgi. Ég elska skyrtur úr léttu efni þessa stundina þær falla svo vel að bumbunni og ég á nóg af þeim inní skáp!
Skyrta: Zara
Sokkabuxur: Oroblu
Skór: Vagabond
Bumba: sístækkandi!
Ég get svo svarið að strákurinn stækkar og stækkar eins og hann fái borgað fyrir það – ég er farin að halda að pabbinn sé að múta honum með einhverju þegar ég er sofandi:)
EH
Skrifa Innlegg