fbpx

Maison Martin Margiela….:/

Það er nú ekki hægt að segja að litir hafi einkennt nýjustu línuna frá Maison Martin Margiela en tískuhúsið er næsti samstarfsaðili H&M – ætli við fáum ekki vonandi að fara að sjá eitthvað meira frá því.

Mér fannst þessi lína ferkar skrítin ef ég á að vera alveg hreinskilin, ég skildi bara alls ekki conceptið – mér fannst flíkurnar sumar hverjar of stórar svo þær misstu algjörlega lögun sína. Eins og kjóllinn á næst neðstu myndinni sem ég myndi bara týnast í – og ég er nánast á stærð við fíl í augnablikinu! Það vantaði bara alla spennu í þessa línu það vantaði allt VÁ – því miður vakti þetta ekki mikla hrifningu hjá mér.

En dæmið endilega fyrir ykkur sjálfar…..Ekki minn tebolli og ég vona að H&M línan verði eitthvað öðruvísi.

EH

Christian Dior - Förðunin er alltaf hluti af show-inu!

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Hilrag

    29. September 2012

    zzzzzz… Ekki skemmtileg lina!

    x

  2. Eyrún

    30. September 2012

    Já, þetta er svolítið “blah”-lína. Þessi hvíti kjóll á næstneðstu myndinni er bara eins og heimsins stærsti stuttermabolur. Híhí.