fbpx

Smashbox – Nýtt á Íslandi

Ég man fyrst til þess að hafa heyrt af þessu merki þegar keppendur í einhverri seríunni af America’s Next Topmodel gerðu myndatöku með þeim. Svo ekkert fyrr en ég lærði förðun þar sem kennararnir gátu ekki hætt að tala um Photo Finish Primerinn frá þeim – sem er snilld;)

Merkið kom fyrst á markað árið 1996. Stofnendur þess, bræðurnir Dean og Davis Factor, eiga sterk tengsl í förðunarheiminn en afa þeirra er eiginlega goðsögn í þessum heimi – þið gætuð kannast við hann, Max Factor;) Merkið leggur áherslu á að framleiða vörur sem endast vel og lengi og gefa gallalaust útlit. Meðal stjarnanna sem eru þekktar fyrir að nota vörur frá merkinu eru Drew Barrymore og Charlize Theron. Árið 2010 var það hins vegar fyrirtækið Estée Lauder sem keypti merkið þó svo bræðurnir stjórni því enn að hluta til.

Á morgun fæ ég að sjá og vita meira um vöruúrvalið sem verður hér á landi og hvar vörurnar munu fást. Ég er orðin svolítið spennt, það er alltaf gaman að fá nýtt merki á markaðinn!

EH

Dolce & Gabbana - Innblásturinn er Augljós

Skrifa Innlegg

8 Skilaboð

  1. Hildur

    24. September 2012

    Eg a einmitt primerinn frá þeim og hann er alveg geggjaður !

  2. Ester

    25. September 2012

    Sniiillld endilega láttu okkur vita þegar þú veist meira :)

    • Reykjavík Fashion Journal

      25. September 2012

      Var að koma af kynningunni hjá þeim – rosalega spennandi og flot vöruúrval. Kemur meira innan skamms:)

  3. Hildur Guðrún

    25. September 2012

    oh jei.. elska þessar vörur, photo finish er eitthvað sem ég nota mikið :)

  4. Carmen Maja

    25. September 2012

    Spennandi! Gaman að fá svona góðar vörur til landsins :)

  5. Ásta

    18. October 2012

    Hvar er hægt að fá þessar vörur?