fbpx

Gersemi frá Missoni-Lindex

Þessi dásamlega peysa er meðal flíka sem eru í Missoni-Lindex línunni sem verður kynnt núna á þriðjudaginn í verslun Lindex í Smáralind kl 9:30 – getið fengið nánari upplýsingar HÉR. Eftir að hafa skoðað flíkurnar sem verða í boði held ég að þessi hér sé alveg ómissanleg! Ef ég næ henni ekki í Lindex þá ætti ég nú að ná að næla í hana á eBay, kemur í ljós hvort ég verð heppin og næ að skreppa frá vinnunni – eða fæ leyfi öllu heldur til að skreppa í Smáralind – kæmi mér ekki á óvart ef ég væri sú fyrsta sem myndi bera þá bón fram en það myndi líklega ekki koma yfirmönnum mínum á óvart;)

EH

Leyndarmál Makeup Artistans #2

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Kristín María

    23. September 2012

    Þetta er víst ullarkápa