Hér fáið þið að sjá eitt umtalaðasta collection tískuvikunnar í ár. Ætli skilnaður leikkonunnar hafi ekki haft mikið um það að segja og svo þær fréttir að þær stöllur hafi valið sérstaklega þá blaðamenn sem fengu að koma á sýninguna og skrifa um flíkurnar – svo kemst þetta allt á internetið;)
Flíkurnar eru mjög stílhreinar og elegant og ég er sérstaklega hrifin af dökkbláu leðurdragtinni – ég er að fíla þennan bláa lit sem er hjá mörgum.
Það er greinilegt að þær stöllur ætla sér stóra hluti í tískuheiminum á næstu árum enda ekki hver sem er sem getur skapað svona mikið umtal og fengið svona mikla athygli á þessum stutta tíma og þær munu eflaust nýta sér það í botn – annað væri vitleysa;)
En hvernig líst ykkur á?
EH
Skrifa Innlegg