fbpx

Olsen Systur á NYFW

Ég er búin að bíða svolítið óþreyjufull eftir því að myndir frá sumarlínu Olsen systranna, The Row, kæmu á netið. Eftir að hafa séð myndirnar þá skil ég biðina. Myndirnar eru nefninlega ekkert alltof spes en það er líklega set upinu hjá þeim að kenna – ég er ekki alveg að skilja þetta því ég hefði haldið að flestir myndu vilja eiga góðar myndir frá sýningunni sinni. Sumar voru hreyfðar og flestar sýndu ekki flíkurnar í heild sinni. En hér er það sem ég valdi úr…

Fötin eru alveg í takt við það sem við höfum séð áður frá systrunum. Stílhrein og elegant í smekklegum litum. Engin munstur og engar litasamsetningar. Ég er ekki alveg búin að ákveða fyrir sjálfa mig hvað mér finnst – Elizabeth & James hentar mínum stíl kannski örlítið betur. En ég er þó að fíla rykfrakkann sem er efstur í tætlur – ég þarf að næla mér í einn svona:)

EH

Mannlífið á NYFW

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Elísabet Gunn

    12. September 2012

    Ég er mjöög hrifin af línunni. Mjög mikið þær – sem að er bara eins og það á að vera.

    • Reykjavík Fashion Journal

      12. September 2012

      Já það er rétt hjá þér! – ólétta konan sem mældist með aðeins stærra leg í morgun en vaninn er á þessu stigi er bara orðin held ég svo sár að hún geti ekki passað í öll þessi fallegu föt;)

  2. Halla

    12. September 2012

    Smart