fbpx

Breskar Fyrirsætur á Lokahátíð Ólympíuleikanna

Bretar nýta tækifærið til að sýna heiminum í eitt skipti fyrir öll hvað þeir eru frábær þjóð. Meðal þess sem fór fram á lokahátíðinni var tískusýning þar sem allar flottustu bresku fyrirsæturnar sýndu breska hönnun undir ódauðlegum tónum Davids Bowie. Mikið vildi ég að ég hefði verið á staðnum!

Kate Moss, Naomi Campbell, Georgia May Jagger, Sophie Dahl, Stella Tennant, Rosie Huntington-Whiteley, Lily Cole og fleiri sýndu hönnun meðal annars Alexander McQueen, Burberry, Paul Smith og Victoriu Beckham sem steig sjálf á svið stuttu seinna með “vinkonum” sínum;)Í september hefti breska Vogue munu síðan myndirnar sem voru utan á stóru vörubílunum sem óku inná leikvanginn með fyrirsætunum birtast. Hér fáið þið smá sýnishorn:Myndirnar voru teknar af Nick Knight – ég hlakka til að ná mér í eintak af blaðinu!

EH

Töff?

Skrifa Innlegg