Þó svo að ég sé með það alveg á hreinu að þið hafið eflaust margt betra að gera en að hanga á Trendnet á aðfangadag langaði mig að senda ykkur smá hátíðarkveðju frá mér og mínum á þessum dásemdardegi. Við fjölskyldan erum tilbúin til að taka á móti jólunum og hvort við náum að skúra í tæka tíð eða ekki verður að ráðast bara á næstunni. Annars hlakka ég til að hitta fjölskylduna mína heima hjá ömmu og afa í hádeginu og skiptast á gjöfum og borða möndlugrautinn. Svo kíkjum við uppí krikjugarð og knúsum svo Sigga frænda uppá spítala og brosum allan daginn bara því þessi frábæri dagur og einn af mínum uppáhalds er runninn upp!
Við fjölskyldan erum búin að njóta aðventunnar og hlökkum til þess að eyða hátíðinni framundan hvert með öðru og með okkar fólki. Mikið vona ég að þið eigið góð jól framundan hvar sem þið eruð stödd í heiminum og njótið þessarar fallegu hátíðar ljóss og friðar.
Gleðileg jól!
EH
Skrifa Innlegg