Ég vinn með svo ótrúlega hæfileikaríku fólki! Nýja 66°N herferðin er mín uppáhalds til þessa. Hún var tekin á hönfinni í Vestmannaeyjum og vatnið kemur uppúr holum í höfninni!! Auglýsingin birtist í nýjasta tölublaði NUDE Magazine HÉR sem var kærkomin lesning eftir að hafa verið að mygla heima veik síðustu 3 daga þar sem ég hef lítið annað gert en að horfa á Greys Anatomy, drekka te og hvíla flensubein.
Svo dauðlangar mig í þessa fallegu hvítu regnkápu – maður verður eiginlega að eiga eina góða regnkápu á rigningarlandinu, finnst ykkur það ekki – ein að reyna að réttlæta;)
EH
Skrifa Innlegg