fbpx

Nýtt

Blog

Nokkrir hlutir sem ég er nýbúin að bjóða velkomna inná heimilið mitt í vikunni. Ómissandi Eurowoman, RUM og Cover, röndóttur kjóll úr Lindex sem verður fullkominn í sumar, Dream Smooth Primer frá Maybelline og blómahárbandið mitt sem er reyndar ekki nýtt en það kom bara svo vel út á myndinni;)

Ég er að sjálfsögðu spenntust fyrir því að prófa primerinn en þetta er sá fyrsti frá Maybelline sem kemur á markað hérlendis. Primer virkar eins og farðagrunnur, hann er settur á undan farðanum en á eftir rakakreminu (ath primer inniheldur engan raka svo það má ekki sleppa rakakreminu). Primerinn jafnar út húðina og gefur henni mjúka og náttúrulega áferð, hann fyllir uppí fínar línur og ör og heldur vel í förðunarvörurnar sem eru settar yfir hann. Þess vegna er sniðugt að setja hann t.d. á augnlokin ef þið ætlið að vera með flotta augnförðun og í kringum varirnar til að koma í veg fyrir að varaliturinn blæði ekki. Þið getið notað hann daglega eða spari og sett yfir allt andlitið eða bara hluta þess. Hann er væntanlegur í verslanir á næstu dögum/vikum.

EH

Neon Hálsfestar

Skrifa Innlegg