fbpx

Tímarita Staflinn

Blog

Í hverjum einasta mánuði kaupi ég alltaf sömu 4 tímaritin – Cover – Costume – Elle DK – Eurowoman – og núna eftir svolítið mikinn tíma (þó svo mikið hafi síast úr í flutningum) þá á ég ansi háa stafla. Ég er líka dugleg að passa vel uppá þá liggur við að ég geymi tímaritin öll í plastumbúðum og skoði þau með hvítum hönskum. Á nokkra mánaða fresti tek ég svo frá kvöld þar sem ég raða þeim í tímaröð – þið megið alveg hlæja af mér en mig grunar að ég sé ekki ein um þetta;)

Í þessum mánuði stóðst ég ekki mátið og keypti 2 auka – maður má alls ekki missa af September issue-inu af Vogue!

Blaðastaflarnir mínir - pláss fyrir einn í viðbót við hliðiná þeim.

Nýjustu blöðin - var að koma nýtt Eurowoman;)

Eigið góða helgi!

Mónitor í Gær

Skrifa Innlegg