Nú er ég svo sannarlega spennt að sjá næsta Mónitor blað. Var að koma úr vægast sagt æðislegri myndatöku með nokkrum flottum stelpum þar sem ég var að gera make up. Hulda Halldóra var að stílisera en hún var t.d. aðstoðarstílisti á Reykjavík Fashion Festival og á Reykjavík Runway hjá henni EYGLÓ. Stílinn var grunge og ég gerði t.d. svart og brúnt smoky, eyeliner með spíss og notaði að sjálfsögðu fallega varaliti! – Vil ekki segja meira þetta verður að vera smá spennó!
Hvet ykkur til í að næla ykkur í Mónitor á fimmtudaginn en blaðinu verður t.d. dreift í menntaskólana.
Inspiration fyrir myndatökuna:
Í vikunni er það svo Oroblu taka með tveimur pjöttuðum rófum:)
Skrifa Innlegg