fbpx

Í Uppáhaldi… „Hinn fullkomni gráfjólublái“

Ég er Essie naglalakkasjúk eins & hefur oft komið fram. Mér finnst lökkin með magnað litaúrval, þau endast vel, það er þæginlegt að setja þau á og jafn þæginlegt að taka þau af, a.k.a. fullkomin að mínu mati, en þegar að ég hélt að ég gæti ekki verið sáttari með naglalakksformúlu þá mættu nýju lökkin hjá Essie til leiks, Gel Couture lökkin. Þetta eru naglalökk sem koma ekki í staðinn fyrir klassísku Essie lökkin heldur bætast bara við sem ný lína af lökkum, formúlan er þannig gerð að naglalökkin notuð með yfirlakkinu gefa svokallaða gel áferð sem líkist þeirri sem við fáum á stofu, endingin er allt að tvær vikur án þess að það flagni eða brotni uppúr lökkunum, ég ELSKA þau. Ég er búin að prófa nokkur og ég verð að segja að þau eru ofboðslega falleg öll með tölu, en eitt lakk stendur uppúr og er algjörlega orðið mitt „go to“ lakk þessa dagana. Það heitir „Take Me To Thread“ og er fallega gráfjólublátt, passar svo fallega við húðlit og er algjörlega klassískt á litinn. Mér finnst það passa við allt og er klárlega uppáhalds í augnablikinu….

Gel Couture lökkin fást á völdum sölustöðum Essie, en þeir eru meðal annars Hagkaup, Lyfja, Lyf&Heilsa og Kjólar&Konfekt <3

14875280_10210646827915225_599871949_n14875349_10210646827875224_523571918_n14886183_10210646827835223_523371383_n14875280_10210646827915225_599871949_n

**Hér er lakkið ásamt top-coatinu, með flassi og án flass**

 

 

14716050_1101790836583224_349190742362383684_n

Liturinn er ómótsæðilega fallegur xx

14445925_1077477705681204_560231555650767168_n
Gellökkin eru svo flott, og hönnunin á flöskunum er ótrúlega smart! xx

 

Þið finnið mig á Snapchat & Instagram undir:
steinunne
xx

Þetta bara skeði, en þetta skeði fyrir mig....

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Þóra Jenny

    30. October 2016

    Hæ. Ein forvitnisspurning, styrkir þetta neglurnar líka? Ég er búin að vera með gelneglur í mörg ár en væri alveg til í að prófa að sleppa því ef ég fyndi gott naglalakk sem styrkir neglurnar aðeins.

    • Steinunn Edda

      2. November 2016

      Hæhæ,

      Sko þetta er ekki gert sérstaklega til að styrkja neglurnar en það er svo sannarlega til hjá Essie, mæli með því klárlega! En annars hjálpar alltaf að vera með naglalakk af þessari styrktargráðu til að halda nöglunum fallegum <3