fbpx

Þetta bara skeði, en þetta skeði fyrir mig….

LífiðLíkaminn

Dramatískasti titill á færslu fyrr & síðar? Mögulega… Ég er í smá byltingu, ein með sjálfri mér & þið eruð velkomin með. Byltingu gegn því að andlegir sjúkdómar, andleg vanlíðan, kvíðalyf & allt sem því fylgir sé TABÚ, sé eitthvað sem er óþæginlegt að tala um & oft á tíðum kallað væl & aumingjaskapur. Ég tek ekki þátt í þessu lengur, ég tek ekki lengur þátt í því að fólk þori ekki að opna sig um sig & sín vandamál af ótta við að fá ekki draumastarfið, missa vini, missa maka eða fleira af því að fólki finnist maður “klikkaður” andlegir sjúkdómar eru ekki tabú, vanlíðan er ekki tabú.

Ég þekki nokkra sem eru að kljást við andlega vanlíðan á hverjum degi, þau sýna það ekki, þau tala ekki endilega um það & þú myndir mögulega aldrei giska á það að manneskjan sem þú sérð líði illa. Hinsvegar ef sama manneskja væri handleggsbrotin þá færi það alls ekki framhjá þér, hún væri í tilheyrandi gifsi, tæki verkjalyf eftir læknisráði & myndi ekki reyna að fela það á neinn hátt, enda ekkert til að skammast sín fyrir, er það ekki? En það sem samfélagið á oft erfitt með að fatta er það að andleg vanlíðan er ekkert annað en sár eftir slys, alveg eins sár eins & beinbrot er nema í staðinn fyrir að vera utan á líkamanum er það á sálinni, sár á sálinni sem þarf oft hjálp við að laga.

Með þessari færslu langar mig að opna þessa umræðu, hvetja fólk til þess að opna sig & fá aðstoð því hún er í boði & hún getur bjargað mannslífum. Ég lenti í hræðilegri lífsreynslu þegar að ég eignaðist dásamlega drenginn minn sem ég hef vissulega komið inn á áður, en ég opnaði mig um minn kvíða & mína áfallastreituröskun á Snapchattinu mínu í gær & viðbrögðin voru ótrúleg.

Mig langaði þess vegna að taka þetta einu skrefi lengra & skrifa færslu hér á þennan flotta miðil & stökkpall sem TRENDNET er. Ég hvet ykkur öll til þess að leita hjálpar ef þið þurfið hana, þetta er ekki feimnismál, þetta er ekki tabú, það að leita sér hjálpar er ekki aumingjaskapur það er hugrekki.

Þið eruð rosalega mörg sem sendið mér fyrirspurnir á Snapchat sérstaklega eftir að ég birti mynd af maganum á mér & eruð að spyrja mig út í það hvað gerðist. Til að ég útskýri það án þess að fara í gegnum allt ferlið (það væri efni í svona 10 færslur) þá gerist það að barnið er ofboðslega stórt, snýr öfugt & eftir 19 tíma í brjáluðum hríðum er ég send í bráðakeisara þar sem að stór mistök gerast hjá læknunum, þarmarnir mínir eru gataðir & ég er svo saumuð aftur saman, í 5 daga flæðir loft út úr þörmunum mínum & inn í kviðarholið sem er lífshættulegt ásamt því að ég er send í hræðilegar & viðbjóðslegar taugaörvandi meðferðir til þess að reyna að leysa loftið sem þau héldu að væri fast í maganum (ekki stöðugt að flæða útaf götunum, þau vissu ekki af þeim) Eftir að ég missi svo meðvitund af sársauka á 6.degi er ég send í sneiðmyndatöku þar sem að götin sjást.

Ég er strax send í uppskurð & látin vita að ég muni mögulega vakna með stóma sé skemmdin það mikil. Ég vakna með þverskurð upp magan frá keisaraskurði og upp að rifbeinum & ligg inni á gjörgæslu í 2 vikur án þess að geta séð um nýfædda barnið mitt á nokkurn hátt. Þetta er hræðilegt, þetta skeði & þetta skeði fyrir mig. Núna sit ég eftir skemmd á sálinni & ég ÆTLA að sigrast á þessu. Lífið er dásamlegt & ég vil njóta þess. Nú er ég búin að leita mér hjálpar & vona að mér fari að líða betur. Einnig kem ég tvíefld til baka á bloggið, eins & opin bók. Ætla að einbeita mér að makeup-inu & leyfa ykkur að vera með í því partýi! <3


14793789_10155370317714745_3192885_n

Stokkbólgin & sárþjáð að reyna að ganga loftið úr mér samkvæmt læknisráði….

 

14794176_10155370317649745_1348302867_n

Ennþá bólgnari & þjáðari eftir aðgerð númer 2, að reyna að hvílast með tónlist í eyrunum. Þetta var eina leiðin fyrir mig að hafa nýfædda Sigga minn hjá mér því ég mátti ekki halda á honum…

10583891_10208395023421520_6714565567605936227_n

Þetta er myndin sem breytti öllu fyrir mig, hér sýni ég magann á mér eins & hann er í dag, hann er slitinn, með risastóru öri upp magan, öðru öri eftir keisara & því þriðja er gatið lengst til vinstri eftir magadren… Hér sýndi ég öllum það sem ég vildi ekki að neinn sæi…

 

13501970_10209511074962111_2875153474893212906_n

Hér ákvað ég að fara í bikiníi í SPA því að ég ætlaði ekki að fela hvernig ég liti út, ég grét alla leiðina í SPA-ið….

 


Takk fyrir að lesa mína sögu, takk fyrir skilaboðin, takk fyrir stuðninginn & takk fyrir að deila ykkar sögum með mér.

Þið finnið mig á Instagram & Snapchat undir:
steinunne
xx

HANN ER LOKSINS TILBÚINN: FALLEGI BLÁI VEGGURINN MINN!

Skrifa Innlegg

30 Skilaboð

  1. Arna

    22. October 2016

    Stattu bein og teinrétt í baki, stolt af sjálfri þér og stolt að hafa komist lifandi í gegnum þessa lífsreynslu. Álit annarra skipta akkúrat engu máli. Það sem skiptir máli er að þú ert til staðar fyrir barnið þitt og fjölskyldu.

    • Steinunn Edda

      24. October 2016

      Takk kærlega fyrir falleg orð! <3

  2. Elfa Arnardóttir

    22. October 2016

    Þú ert LANG öflugust Steinunn. Vildi bara segja þér það því að þú átt skilið að heyra það, oft og mörgum sinnum. Held með þér.

    Knús frá DK.

    E

    • Steinunn Edda

      24. October 2016

      Takk elsku Elfa <3

  3. Erla

    22. October 2016

    vá duglega þú! mér finnst þú með flottan maga, jú það er vissulega ör en það er rosaleg lífsreynsla á bakvið örið.

    • Steinunn Edda

      24. October 2016

      Takk kærlega fyrir falleg orð <3

  4. Sara

    22. October 2016

    Hæ.
    Takk fyrir góðann pistil og bata kveðja!
    Nú stend ég fyrir því vali að eiga barn sitjandi eða með valkeisara og í forvitni minni þar sem þú átt þessa reynslu að baki var vitað að barnið væri sitjandi þegar þú fórst af stað í fæðingu?

    Innilega til hamingju með þig og barnið þitt

    • Steinunn Edda

      22. October 2016

      Nei hann var ekki sitjandi, bara með andlitið upp! Gangi þèr vel :)

  5. Dúdda

    22. October 2016

    Mér finnst þú rosalega hugrökk ogmér finnst þú líka með rosa flottan maga!

    • Steinunn Edda

      24. October 2016

      Takk kærlega fyrir <3

  6. sigridurr

    22. October 2016

    Flottust! x

    • Steinunn Edda

      24. October 2016

      <3

  7. Nanna Sigrún Georgsdóttir

    22. October 2016

    Vá! Þú ert frábær, frábær, frábær!! Gleymdu því ekki. FRÁBÆR!!!

    • Steinunn Edda

      24. October 2016

      Takk kærlega fyrir <3

  8. Soley

    22. October 2016

    Þu ert hetja að opna þig. En þetta er líklega fyrsta skrefið þitt i átt að þvi að nýta þessa lífsreynslu þína a jákvæðan hátt. Gangi þer vel <3

    • Steinunn Edda

      27. October 2016

      Takk kærlega fyrir! <3

    • Steinunn Edda

      27. October 2016

      <3 <3

  9. Sigrún Edda

    24. October 2016

    EITT RISASTÓRT VÁ!!!! Þú ert svo flott og mikil hetja! Það sen þú getur verið stolt af sjálfri þér og að hafa kjarkinn til að standa með sjálfri þér og öllum þeim konum sem bera ör á líkamanum og skammast sín e.t.v. fyrir þau. Þetta á að vera normið – lífið í öllum myndum, ekki bara glansmyndum!!!

    • Steinunn Edda

      27. October 2016

      Takk kærlega fyrir, þetta er ótrúlega falleg kveðja frá þér og mikið er á sammála! <3

  10. Svanhvít

    24. October 2016

    Elsku Steinunn, þú ert svo dugleg. – Algjör hetja :-) Þetta með andlegu veikindin, sem eru tabú- er skelfilegt 2016.

    • Steinunn Edda

      27. October 2016

      Takk kæralega <3 alveg skelfilegt..

  11. Birna Íris

    25. October 2016

    Þú ert algjör rokkari!

    • Steinunn Edda

      27. October 2016

      Takk kærlega <3

  12. Ásta Hermanns

    27. October 2016

    VÁ! Takk fyrir að deila! Örin þín gera þig að þeirri konu sem þú ert í dag, að koma barni í heiminn er svo dásamlegt og erfitt og hrikalegt og best..allt á sama tíma og við konur eigum ekki að vera hræddar við að syna líkama okkar!
    Bravó til þín!

    • Steinunn Edda

      27. October 2016

      Þetta er sko sannleikur! Takk kærlega fyrir <3

  13. Kristín P

    30. October 2016

    Ég verð bara að skrifa til þín enn einu sinni hvað ég er ólýsanlega stolt af þér. Ég fæ gæsahúð við lesturinn yfir því hvað þú ert mögnuð, sterk og falleg manneskja, að innan sem utan. Það eru ekki margir sem myndu taka svona átakanlega lífsreynslu og erfiðar tilfinningar og nýta þær til að hjálpa sér og svo ótrúlega mörgum öðrum í leiðinni. Þú ert ekkert annað en hetja <3

  14. Rósa

    31. October 2016

    Ég datt inn á pistilinn þinn og sit hérna með gleðitár í augunum. Verandi mjög gagnrýnin á lífstílsblogg og þann plat-glamúrheim sem þau oft endurspegla, og ekki minnst neysluhvatninguna sem þeim fylgir, þá les ég örsjaldan slíkar síður. En þessi pistill þinn gerði þig að manneskju, að raunverulegri og gullfallegri manneskju. Þú varðst traustsins verð og nauðsynleg fyrirmynd í einni færslu. Takk fyrir að vera mannleg, takk fyrir að vera sterk og opin og takk fyrir að sýna okkur raunverulega fegurð án glamúrsins. Þú ert snillingur í einu orði sagt. Meira svona, meira líf, minna plat!

    • Steinunn Edda

      2. November 2016

      Vá takk fyrir mögnuð orð, þykir ekkert smá vænt um þetta <3 <3

  15. Pingback: Steinunn var hætt komin vegna læknamistaka - DV