fbpx

Essie Sumar 2016 – er mætt!

Sumarið frá Essie er mætt að þessu sinni & skartar sínu fegursta. Ég er Essie-fíkill & viðurkenni það fúslega. Ég elska að breyta til þegar kemur að naglalakki & skipti mögulega stundum aðeins of ört. Ég hef alltaf verið hrifin af Essie lökkunum, mér finnst úrvalið dásamlegt, litirnir þéttir & góðir, auðvelt að bera þau á & endast vel. Saga Essie lakkana er líka dásamleg, ég mæli með því að þið kynnið ykkur hana ef þið eruð á Essie vagninum, þá kolfallið þið.

En eins & ég sagði, sumarlínan er mætt í öllu sínu veldi. Það eru 6 litir í línunni ótrúlega ólíkir & svolítið skemmtilegt að það séu 2 dökkir litir í sumarlínu, það er óvanalegt & ég fíla það, því afhverju má maður ekki bara líka vera með dökkt naglalakk á sumrin ef maður fílar það? Ég ákvað að prófa tvo fyrir ykkur bara upp á gannið & sýna ykkur…

Litirnir eru á leiðinni í búðir & eru komnir á þónokkra sölustaði nú þegar , svo endilega drífið ykkur út í búð & nælið ykkur í þessa dásamlegu línu, litirnir koma aðeins í takmörkuðu upplagi! xx

Sölustaðir Essie eru til dæmis Hagkaup, Lyfja, Lyf&Heilsa & Kjólar&Konfekt…

 

 

2016 Summer Lineup

Hér er línan í heild sinni, sumar 2016 – Frá hægri:
Coconut Cave, Berried Treasures, Hiking Heels, Viva Antigua!,  Loot The Booty & Tribal Text – Styles

Berried TreasuresHiking HeelsLoot The BootyViva Antigua!Coconut Cave05 Summer16_Front

 

Hér sjáið þið svo nokkra liti á nöglunum mínum… athugið að ég setti aðeins eina umferð af litunum xx

13652863_10209742182339651_1077764906_n-1 13652359_10209742182259649_2138408742_n 13664603_10209742276261999_1951785913_n 13664753_10209742182299650_1948011527_n-1

Þið finnið mig á Instagram & Snapchat undir:
steinunne
xx

Nýtt frá TinyCottons

Skrifa Innlegg