fbpx

UPPÁHALDS Brúnkan..

FörðunLíkaminn

Vöruna fékk ég að gjöf, það hefur þó engin áhrif á skoðun mína á henni þar sem að ég skrifa einungis um það sem að mér virkilega finnst sniðugt eða líkar við & langar að deila með ykkur elsku lesendur xx

Þið sem hafið fylgst með mér áður vitið það vel að ég er brúnkukremsáhugamanneskja. Þið sem hafið hinsvegar ekki gert það, HÆ ég heiti Steinunn Edda & er brúnkukremsáhugamanneskja! Ég hef í gegnum árin leitað endalaust að hinu fullkomna brúnkukremi & verð hreinlega bara að segja að himnarnir opnuðust þegar ég uppgötvaði St.Tropez, ég hef aldrei farið leynt með það að ég nota alltaf St.Tropez, margar mismuandi týpur & því skal enginn efast um að ég hef alltaf elskað það merki.

Ég fékk að prófa St.Tropez Gradual Tan Tinted, en það krem hafði ég ekki prófað áður. Ég verð að segja að þetta var ást við fyrstu sýn, enda er þetta stórkostlegt krem. Brúnkukremið gefur strax lit með áferð sem að gerir húðina lýtalausa en það myndast eins og einhversskonar hula yfir alla húðina sem felur marbletti, litamisfellur & fleira. Lyktin er ótrúlega góð og formúlan þornar strax svo að maður er ekkert klístraður. Það sem að ég dýrka einstaklega mikið er það að þetta er bæði „instant“ & „gradual“ tan, þú færð lit strax svo þú ert tilbúin að fara út á nokkrum mínútum en á sama tíma er þetta „gradual“ tan sem byggist upp ef þú setur kremið nokkrum sinnum á þig.

Ég verð að segja að í augnablikinu er þetta uppáhalds brúnkukremið mitt, svona mitt „go to“. Ég ber brúnkukrem alltaf á mig með svona lúffu eða hanska, ég nota núna St.Tropez lúffuna, en mér finnst það mjög mikilvægt til að kremin setjist ekki í rákir á líkamanum.

Ég á svolítið erfitt með að gera fyrir & eftir myndir þar sem að ég er eiginlega alltaf með brúnkukrem & verð því voðalega sjaldan hvít, en þið getið vel séð myndir hér á blogginu, á Instagramminu mínu & á Snapchat! Sendið mér línu ef það er eitthvað, ég elska að fá spurningar frá ykkur! xx

st.tropez

Þið finnið mig á Instagram & Snapchat undir:
steinunne
xx

á mínum nöglum xx

Skrifa Innlegg

10 Skilaboð

  1. Sigríður

    20. June 2016

    Hæ Steinunn, setur þú þetta krem líka í andlitið eða bara á líkamann?

    • Steinunn Edda

      20. June 2016

      Hæhæ! Venjulega nota ég sérstakt brúnkukrem fyrir andlitið, en ég prófaði að setja þetta í andlitið og það virkar flott! – stíflaðist ekkert og fékk fallegan lit xx

  2. Bryndís Gunnlaugs

    20. June 2016

    En hvaða brúnkukrem finnst þér best fyrir andlitið?

  3. Sigurbjörg

    20. June 2016

    Hæhæ,

    Hvaða brúnkukrem finnst þér best á andlit?

    • Steinunn Edda

      21. June 2016

      Hæhæ, ég hef verið að nota andlitsbrúnkukremið frá St.Tropez hingað til. En ég fékk að prófa olíuna þeirra sem er fyrir andlit og núna er ég að nota hana, fallegur litur, létt áferð og lyktin er himnesk! xx

  4. Ása

    21. June 2016

    Hæ Steinunn, hvaða brúnkukremi myndirðu mæla með fyrir andlit?

  5. Ása

    21. June 2016

    Hæ hæ Steinunn, hvaða brúnkukremi myndirðu mæla með fyrir andlitið?

    • Steinunn Edda

      21. June 2016

      Hæhæ, ég hef verið að nota andlitsbrúnkukremið frá St.Tropez hingað til. En ég fékk að prófa olíuna þeirra sem er fyrir andlit og núna er ég að nota hana, fallegur litur, létt áferð og lyktin er himnesk! xx

  6. Karen

    29. June 2016

    hæhæ, hefuru prófað sturtu brúnkukremið á st. Tropez? Ef svo er hvernig virkar það í samanburði við þetta?

    • Steinunn Edda

      1. July 2016

      Hæhæ – já ég fékk að prófa það og mér líkaði því miður alls ekki.. Hentaði mér ekki – en t.d. hentaði vinkonu minni mjög vel.. Skiptar skoðanir, en ekki fyrir mig :)