Við Siggi vorum svo heppin að fá að kíkja í verslun Petit á Suðurlandsbraut & fá að sjá nýjustu línuna frá gæðamerkinu tinycottons. Línan kemur í sölu í Petit í dag klukkan 11:00 & aðeins í takmörkuðu upplagi svo að fyrstur kemur, fyrstur fær.
Við völdum okkur eitt dress sem samanstóð af peysu, buxum & kraga um hálsinn, liturinn áferðin, mýktin ÓMÆ. Línuna þarf vart að kynna enda búin að planta sér rækilega inn í barnafatatískuna uppá síkastið, falleg snið, fallegir litir & dásamleg gæði. Fötin verða ekki sjúskuð í þvotti & það er gott fyrir börnin að hreyfa sig í þeim enda efnin stórkostleg. Eins & þið sjáið er ég mjög hrifin.
Línan er innblásin af tilfinningum barna sem að er hrikalega krúttlegt, samanber hendurnar á kraganum. Það eru auðvitað til ótrúlega mörg mismunandi snið, gallar, litir & fylgihlutir, ég mæli með því að þið kíkið upp í Petit á úrvalið, það er svo fallegt.
Ég mæli með… xx
Þið finnið mig á Instagram & Snapchat undir:
steinunne
xx
Skrifa Innlegg