fbpx

MEISTARAMÁNUÐUR #BÓLGUEYÐANDI MORGUNSKOT!

Lífið

Ég er alveg á fullu í Meistaramánuði núna eins & margir fylgjendur mínir hafa tekið eftir á Snapchat, en það er auðvitað auðveldast að leyfa ykkur að fylgjast með hverri mínútu þar. Eitt af því sem að ég hef fengið endalaust af spurningum útaf er skotið sem ég tek á hverjum morgni sem er einstaklega bólgueyðandi & bjúgeyðandi.

Ég uppgötvaði þetta skot úti í Danmörku þegar ég var ólétt en ég var eins & áður hefur komið fram mjög heppin á þessari meðgöngu & það eina sem hrjáði mér í raun & veru var það að undir miðja meðgöngu var ég örlítið bjúguð á morgnana, ég fann helst fyrir því vegna þess að hringarnir mínir urðu nokkuð þröngir. Ég leitaði mér upplýsinga & það einfaldasta & jafnframt samkvæmt flestum áhrifaríkasta var epla-ediksskot á morgnana. Ég prófaði þetta & eftir fyrsta skot var ég fallin. ég bókstaflega horfði á hann leka af mér bjúginn & u.þ.b. 5 mínútum eftir að ég tók skotið voru hringarnir orðnir eðlilegir (góður mælikvarði að mínu mati)

16507302_10211651677675841_588361100_n

SKÁL!

………………………………………………………………………………………………………………………

Þetta er súpereinfalt!
1 tappi af eplaediki í venjulegt glas & fyllt upp með ísköldu vatni
drukkið á leifturhraða & smá gretta fylgir í lokin
fyrir þá alla viðkvæmustu er hægt að drekka smá mjólk eftirá en hún eyðir öllu edikbragði

Fullkomið fyrir þá sem eru að borða hollt & hreyfa sig af krafti í þessum flotta mánuði, en þetta er eins & áður segir bólugeyðandi & því frábært fyrir líkama & sál! xx

Þið finnið mig á Snapchat & Instagram undir:
steinunne
xx

KVÖLDSTUND Á APÓTEKINU

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. Björg

    5. February 2017

    Passa samt tennurnar, þetta er alveg ofsalega súrt og því mjög glerungseyðandi.
    Drekka hreint vatn á eftir eða fá sér tyggjó til að hífa sýrustigið í munninum aftur upp en ekki bursta tennurnar strax á eftir.

    • Steinunn Edda

      6. February 2017

      Frábært ráð! ég geri það einmitt en steingleymdi að taka það fram! Takk fyrir innleggið! <3

  2. diana

    6. February 2017

    hvað með engiferskot bara líka ? það er alveg frabært

    • Steinunn Edda

      7. February 2017

      Já vissulega fyrir suma :) En alveg hræðilegt fyrir brjóstsviðann á meðgöngu, þess vegna datt ég á hitt :) xx