Færslan er unnin í samstarfi við Chanel Beauty
Síðasta miðvikudag fór ég í kvöldmat með Chanel Beauty á fallega nýja, Edition Hotel ásamt nokkrum skvísum. Þemað var N°5 enda vorum við að fagna 100 ára afmæli N°5!
Chanel N°5 var kynnt fyrst til leiks 5. maí 1921 sem er fyrir 100 árum og ilmurinn er einn sá elsti í dag og ennþá sá vinsælasti. Gaman er að segja frá því að engin önnur en hún Marilyn Monroe elskaði ilminn á sínum tíma! En Chanel N°5 var fyrsti abstrakt ilmurinn í heiminum, sem innihélt meira en 80 innihaldsefni.
Þetta er eftirminnilegt kvöld & átti ég yndislegt kvöld með stelpunum! Ég læt myndirnar að neðan tala fyrir sig! x
Ég & Elísabet okkar – Guðrún okkar, Arnhildur & Kolbrún, skvisur – Takk fyrir að lesa! xx
Skrifa Innlegg