Í dag er hinn árlegi bleiki dagur – á þessum degi hvetur Krabbameinsfélagið fólk til að klæðast bleiku til að styðja átakið sem sett er hvert ár í október, nú til styrktar baráttunni gegn brjóstakrabbameini. Í tilefni dagsins ákvað ég að henda í bleikan innblástur fyrir heimilið.
Ég er mjög hrifin af bleikum og þá sérstaklega fyrir heimilið. Liturinn er líflegur & gleður augað. Ég er sjálf byrjuð að safna fallegum hlutum inn í herbergið í litnum. Ég er einnig mjög hrifin af því að blanda bleikum við gráan lit, en það sjáið þið á myndum hér að neðan.
Myndirnar fann ég á Pinterest.
Góða helgi!
x
Endilega fylgist með mér á Instagram: @sigridurr, & einnig á SnapChat undir nafninu siggamagga
Skrifa Innlegg