Við mamma fórum í langa göngu í dag í dásamlegu fjalllendi, Parco delle Cascate di Molina, sem er æðisleg gönguleið/útivistarsvæði fyrir alla fjölskylduna í um 30 km fjarlægð frá Verona.
Sólin skein og Ítalía sýndi allar sínar bestu hliðar fyrir mömmu sem er nýkomin til okkar til Verona. Ég ætlaði ekki að setja þessar myndir hingað inn, þær voru frekar ætlaðar í fjölskyldualbúmið, en mig langar bara rétt að benda þeim ferðalöngum sem hafa haft samband við mig á þetta “activity”. Fossar og ár, kyrrðin, gróðursældin, útsýnið og fuglasöngurinn gerir svæðið einstaklega skemmtilegt og á góðum sumardegi er þetta algjör paradís. Að taka með nesti og fara í picnic, leyfa krökkunum að spreyta sig hinum ýmsu leikjum, vaða í lignum ánum, róla sér í fossum og klifra í klettunum finnst öllum skemmtilegt og skapar svo sannarlega ljúfar og góðar minningar.
Ég kíkti á hvað TripAdvisor hafði um málið að segja og mér sýnist þeir vera jafn ánægðir með þetta og ég. Fyrir áhugasama er hægt að lesa meira HÉR. :-)
Páskarnir okkar í Róm voru afskaplega góðir. Þegar ég fór upp í lestina hér í Verona gerði ég mér ekki grein fyrir því að tveimur og hálfum klukkutíma síðar yrði ég stödd á sundlaugarbakka í bikiníinu einum klæða. Dagarnir voru svo fallegir en Rómaborg skartaði öllu sínu fegursta og guð minn góður, fegurð þessarar borgar er engu lík. Umhverfið er það guðdómlegt að ég ákvað að leggja símann niður, hætta að taka myndir og njóta fegurðarinnar sem borgin býr yfir. Næst þegar ég fer verð ég búin að ná andanum og þá skal ég reyna að ná betri myndum t.d af miðbænum og sýna ykkur heima á Fróni.
Útsýnið yfir Rómaborg. Vatikanið er uppi til hægri á myndinni.
Ég hef ekki mörg meðmæli til að deila með ykkur í þetta skiptið, enda er Róm svo gott sem alveg ný fyrir mér. Næst verð ég búin að fá góð tips sem ég get síðan deilt með ykkur. Ég get þó að sjálfsögðu mælt með hótelinu sem við vorum á. Það heitir Rome Cavalieri og er staðsett þannig að bestu herbergin hafa útsýni yfir alla Rómaborg, sbr fyrsta myndin mín. Rómansinn er allsráðandi en það kommentaði einmitt ein hjá mér á Instagram og sagði að hún hafi farið í brúðkaupsferðina sína á þetta hótel. Ég trúi ekki öðru en þau hafi notið þess í botn enda hefur SPA-ið á hótelinu verið kosið eitt það besta í heimi. Þegar ég gekk inn í herbergið okkar missti ég andlitið, útsýnið og fegurðin var slík að ég trúði ekki mínum eigin augum ! Það eru endalaus fótboltaplögg í gangi þannig við fáum að kynnast rjómanum af því besta og gaman að geta notið þess á meðan það er í boði. Herbergið okkar, öll þjónusta og annað var því í samræmi við það.
Ég sagði ykkur að skrifa Feneyjar á bucketlistann ykkar, bætið alveg endilega Róm við líka – enda minnsta mál í heimi að taka lestina á milli og kíkja á báða staðina í sömu ferð :-)
Ég geri mér grein fyrir því að ofnbakað grænmetið sé ekki efst í huga ykkar ákkúrat núna. Engu að síður er ég með það á heilanum og ætla því að setja það hingað inn en þið getið þá kíkt aftur á þessa uppskrift eftir páska ;-)
Það er þó reyndar ekki mikil uppskrift sem liggur að baki, þetta er meira svona að föndur sem bragðast jafn vel og það lítur út. Því fleiri litir, því fallegra, betra og örugglega hollara. Eftir að ég byrjaði í einkaþjálfuninni er mataræðið mitt í algjörri gjörgæslu þó það hafi verið mjög gott fyrir ! Ég hef því verið að dunda mér við að ofnbaka grænmeti með fyllingu og þá helst papriku og eggaldin. Hvort tveggja er svo bragðgott þegar búið er að elda það með þessum hætti en Emil elskar þetta einmitt líka. Aðferðin er einkar einföld og um að gera að leyfa ímyndunaraflinu að njóta sín og nota grænmetið sem til er á heimilinu. Ég hef bæði borið grænmetið fram sem aðalrétt en líka sem meðlæti. Einnig er tilvalið að gera smá auka og taka með í vinnuna/ skólann og borða sem hádegismat daginn eftir en það er ekki síðra daginn eftir !
Það sem þarf:
Eggaldin / Rauð eða gul paprika
Brauðrasp. Ég kaupi tilbúið ristað brauð og myl það niður í lokuðum poka með sleif
Parmesanostur
Ólífuolía
Kúrbítur
Litlir tómatar
Babyspínat / rucola
Kóríander eða aðrar ferskar kryddjurtir
Hnetur/fræ eftir smekk
Pipar
Sósa:
Mango chutney
Hrein jógurt
Kóríander
Aðferð:
Hitið ofninn í 200°C, undir og yfir hiti.
Skolið grænmetið vel og fræhreinsið.
Skerið eggaldin og/eða paprikuna í tvennt en mér finnst flott að skilja stöngulinn eftir, þið ráðið hvað þið gerið. Skvettið smá ólífuolíu yfir grænmetið.
Næst gerum við eins og ítalarnir þegar þeir t.d fylla tómata að þá nota þeir brauðrasp, rifin parmesanost og ólífuolíu og hræra vel saman í skál. Næst skef ég að mestu innihaldið úr eggaldininum ( samt ekki til botns) með skeið og hræri því saman við brauðraspsblönduna. Þannig byrja ég svo að “stöffa” grænmetið sem á að fylla, þ.e paprikuna og/eða eggaldinið. Næst saxa ég spínat niður niður, sker kúrbítinn í litla bita sem og tómatana en gott er að taka innihaldið úr tómötunum svo fyllingin verði ekki alltof blaut. Öllu hrært saman í skál og kryddað með ferskum kryddjurtum, t.d kóríander. Takið grænmetisblönduna og klárið að fylla grænmetið með henni. Að lokum er gott að strá hnetum eða sólblómafræjum yfir áður en þið færið grænmetið inn í ofn.
Athugið á meðan eggaldinið er að bakast að þá er hætta á að hann blási upp. Ef það gerist að þá verðið þið bara tilbúin með tannstöngul, stingið á, gerið nokkur göt og hleypið heita loftinu þannig út.
Á meðan grænmetið bakast hrærið þið saman smá mango chutney saman við hreina jógúrt en ég set einnig kóríander því mér finnst það svo gott. Þegar grænmetið er tilbúið hellið þið sósunni yfir eins og ég geri á myndunum og skreytið að vild.
Þar sem ég veit ekkert skemmtilegra en brúðkaup fæ ég alveg kitl í magann að fletta í gegnum nýjasta Nude Magazine en þar er brúðkaupum gert hátt undir höfði. Helst væri ég til í að gifta mig á hverju ári, að sjálfsögðu sama manninum, en mér hefur verið sagt að það sé ekki í boði. Ég stend því á hliðarlínuni og tek þátt með þeim hætti en vonast jafnframt til að vinkonur mínar, eða JAFNVEL systur ( hallóóóó!) fari nú að ganga í það heilaga.
Sunna Dís, blaðamaður hjá Nude, hafði samband við mig og við fórum aðeins yfir daginn okkar Emils en við giftum okkur sumarið 2012. Fyrir áhugasama klippti ég viðtalið út fyrir þá sem vilja lesa en ég mæli þó að sjálfsögðu með að þið lesið blaðið í heild sinni HÉR. Blaðið er að vanda stórglæsilegt en það er sem áður flottasta vefrit landsins og frítt að auki !
Ég skrifaði einnig á sínum tíma ítarlegt blogg um brúðkaupið og það er að finna HÉR.
P.s myndin þar sem við erum dansandi hálf nakin á Sæbrautinni var tekin um klukkan þrjú um nóttina af Gunnari mági mínum sem festi þetta ógleymanlega móment á filmu. Fallegar þessar íslensku sumarnætur :-)
Ég er með þetta bikiní á heilanum, svo mikið að ég er komin með höfuðverk og held ég geti ekki sofnað í kvöld. Ég gekk svo langt að senda fyrirtækinu e-mail og spurði hvort ég gæti með einhverjum hætti keypt það. Ég finn það ekki á netinu þrátt fyrir að hafa eytt nokkrum klukkustundum í að leita !
Hafið þið séð flottara bikiní ??????
– Nei ég veit, þetta er flottasta bikini ever made !
Heiðdís Helgadóttir (heiddddddis á instagram) teiknari sendi nýlega frá sér nýtt efni sem eflaust margir hafa beðið eftir. Í bland við uglurnar teiknar hún nú fálka, loftbelgi og fiðrildi í sama stíl en þó hefur fallegri litapallettu verið bætt við myndirnar.
– Smellið á myndirnar til að stækkka þær –
Ég ætla að leyfa teikningunum að tala sínu máli, svo fallegar eru þær.
Fyrir áhugasama fást myndirnar í Mýrinni, Aurum, Kistu á Akureyri og Póley í Vestmannaeyjum.
Tobba Marinós, vinkona mín og verðandi móðir mætti óvænt í babyshower á Coocoo´s Nest í vikunni. Við vinkonur hennar, með Írisi í farabroddi, skipulögðum bleika veislu í anda Tobbu sem heppnaðist svo vel. Þrátt fyrir að ég sé erlendis sleppi ég ekki að gleðja vinkonur mínar á svona dögum og ræsti út bökunarsnillingana sem ég þekki. Það fyrsta sem ég gerði var að rífa upp tólið og hringja í Dagbjörtu systur og biðja hana um að töfra fram bleika oreopops með slaufu og sendi svo mail á Hildi Dís, systur Svönu sambloggara míns, og athugaði hvort hún gæti bakað bleika ombre köku fyrir mig. Þær voru ekki lengi að taka málin í sínar hendur og með snilli sinni töfruðu þær fram þetta augnakonfekt og sælgæti sem allir gjörsamlega slefa yfir.
-Klikkið á myndirnar til að sjá þær stærri –
Oreopopsin setja svo skemmtilegan svip á borðið, sérstaklega ef þeir eru látnir standa með þeim hætti eins og Dagbjört útfærði þá, og því um að gera að bæta þeim á veisluborðið. Hvort sem fólk síðan borðar þá eða ekki að þá gleðja þeir svo sannarlega veislugesti með fegurð sinni. Ef það er veisla á döfinni að þá mæli ég með að þú horfir á þetta fjögra mínútna video og sérð hvað það er einfalt og sniðugt að búa til oreopops en þetta geta allir, sama hversu góðir ( eða slæmir) þeir eru að baka. Mér finnst þeir passa við öll tilefni; Afmæli, brúðkaup, babyshower, útskriftarveislur, skírnarveislur o.s.frv. Eins gæti þetta líka verið skemmtilegt dundur fyrir krakkana í páskahretinu sem er væntanlegt til landsins en ég veit að börnunum finnst þetta mjög spennandi og skemmtilegt verkefni. Svo er bara um að gera að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn og skapa ykkar eigin oreopops-listaverk og bjóða fjölskyldunni í kaffi.
Súkkulaðið sem Dagbjört notaði til að dýfa kexinu í fæst í Kosti og/eða í Allt í Köku og þú getur valið úr nokkrum mismunandi litum. Skrautið og pinnana finnuru líka þar. Borðarnir eru til í öllum regnbogans litum í Söstrene Grene og svo finnuru oreokexið í öllum helstu verslunum landsins.
Eftir að sólin fór að skína og allt varð bjartara hef ég tekið mig örlítið á í umhirðu húðarinnar. Ég veit að líkamsrækt er það besta sem ég geri fyrir húðina mína sem og drekka nóg af vatni og borða hampfræ og/eða olíu. Fyrir stuttu kviknaði samt áhugi hjá mér fyrir að kaupa andlitsmaska, sem gæti kannski gefið húðinni smá extra ljóma, og því hef ég verið að skoða á netinu hvað gæti hentað mér vel. Mér finnst svo leiðinlegt að fara í verslanir þar sem þjónustufólkið er svo hlutdrægt að það er ekki hægt að taka mark á því og því er best að vinna rannsóknarvinnuna bara heima í tölvunni. Úrvalið er endalaust, úr óteljandi möskum að velja en örugglega hægt að setja eitthvað út á þá alla. Það sem mér líst best á eftir að hafa lesið og skoðað á netinu er…
NARS – AQUA GEL LUMINOUS MASK
“I should note that I am a mask fan, and have tried many. I really like that you can use this ask two ways; You can apply liberally to face and tissue or rinse off after ten minutes for an instant boost of moisture and amazing dewy glow, or apply liberally to face and neck about an hour before you go to bed and let the mask work its magic while you sleep “. Þetta skrifar ánægður viðskiptavinur á Makeupalley.com. Ég er nokkuð hrifin af NARS snyrtivörunum og því finnst mér þessi hljóma vel. Ég ætla að láta slag standa og prufa hann við tækifæri.
DERMALOGICA – GENTEL CREAM EXFOLIANT. SUPER SMOOTHING MASQUE
Lactic and Hydroxy Acid Exfoliating masque for dramatic skin smoothing. Non-abrasive exfoliation treatment helps stimulate cell renewal as natural fruit enzymes detach dead skin cells to improve skin texture – dermalogica.com. Lisa Eldridge virðist halda mikið upp á þennan hreinsimaska frá dermalogica. Samkvæmt því sem ég hef verið að skoða á netinu að þá virðist hún alltaf mæla með honum, hvort sem það eru viðtöl fyrir tímarit eða á sinni eigin heimasíðu og því ættum við að geta treyst því að hér er um góða vöru að ræða.
SISLEY – BLACK ROSA CREAM MASK. INSTANT YOUTH. SMOOTHING. PLUMPING. BRIGHTENING
Ítalir dásama Sisley vörurnar og því ákvað ég að slá til og kaupa mér tvær vörur frá þeim ( fyrir þá sem ekki vita að þá eiga Sisley snyrtivörurnar ekkert skylt við fatamerkið Sisley). Ég keypti mér annars vegar Sisley Youth sem er “hrukkukrem” fyrir 25+ og hinsvegar Sisley Black Rose Cream Mask. Lisa Eldrigde hafði mælt með honum í andlitsmaska video-inu sem hún póstaði um daginn og því ákvað ég að slá til og prufa. Ég er ekki frá því að ég sé örlítið frísklegri fyrir vikið og með ljómandi fína húð.
GLAMGLOW
GlamGlow, sem hlotið hefur ótal viðurkenningar, er líka eitthvað sem ég væri til í að prufa. Umbúðirnar heilla mig reyndar ekki, en ég held samt að ég ætli að prufa hann. Á heimasíðu Harpersbazaar stendur að þetta sé A-List favorite og stjörnur á borð við Angelinu Jolie og Natali Portman elski hann. Ef þið farið á heimasíðu GlamGlow og lesið um vöruna að þá spara þeir ekki yfirlýsingarnar og segja m.a þetta; As the only Skincare Company to be located on the ‘Stars Walk of Fame’ in Hollywood, we are committed to providing the most advanced, fastest and innovative cosmetic technology for the Entertainment, Music, Fashion & Award Industries and bringing our Hollywood industry high-end cosmetic mud-delivery products to all consumers Worldwide, in unique quick-fix and novel ways.
Skyn Iceland Fresh Start Mask
Að lokum líst mér vel á Fresh Start Mask frá Skyn Iceland. Ég hef tekið eftir að þetta merki hefur verið að ryðja sér til rúms heima á Íslandi en Fríða María og Guðbjörg Hulddís makeup-artistar hafa verið að mæla með því, sem er ágætis gæðastimpill. Þessi maski er því kominn á innkaupalistann.
Vonandi höfðuð þið eitthvert gagn og gaman af þessum pósti en hann hefur verið í ansi marga daga í bígerð, þó það líti kannski ekki þannig út. Ef þið eigið ykkar uppáhalds maska að þá megið þið endilega deila þeim hér í kommentunum, bæði fyrir mig og aðra til að sjá :)