fbpx

PARCO DELLE CASCATE DI MOLINA

FerðalögVerona

unnamed-21

unnamed-24

unnamed-23

unnamed-19

unnamed-18

unnamed-20

 

Við mamma fórum í langa göngu í dag í dásamlegu fjalllendi, Parco delle Cascate di Molina, sem er æðisleg gönguleið/útivistarsvæði fyrir alla fjölskylduna í um 30 km fjarlægð frá Verona.

Sólin skein og Ítalía sýndi allar sínar bestu hliðar fyrir mömmu sem er nýkomin til okkar til Verona. Ég ætlaði ekki að setja þessar myndir hingað inn, þær voru frekar ætlaðar í fjölskyldualbúmið, en mig langar bara rétt að benda þeim ferðalöngum sem hafa haft samband við mig á þetta “activity”. Fossar og ár, kyrrðin, gróðursældin, útsýnið og fuglasöngurinn gerir svæðið einstaklega skemmtilegt og á góðum sumardegi er þetta algjör paradís. Að taka með nesti og fara í picnic, leyfa krökkunum að spreyta sig hinum ýmsu leikjum, vaða í lignum ánum, róla sér í fossum og klifra í klettunum finnst öllum skemmtilegt og skapar svo sannarlega ljúfar og góðar minningar.

Ég kíkti á hvað TripAdvisor hafði um málið að segja og mér sýnist þeir vera jafn ánægðir með þetta og ég. Fyrir áhugasama er hægt að lesa meira HÉR. :-)

PÁSKAR Í RÓM

Skrifa Innlegg

5 Skilaboð

  1. Sigurbjörg Metta

    24. April 2014

    Vá. Ég hef ekkert meira að segja en bara vá!

  2. Elísabet Gunnars

    24. April 2014

    Æji gaman : bæði að hafa mömmu og þessi göngutúr.
    Rosa fallegt.

  3. Harpa

    24. April 2014

    Æðislegt! Njótið ykkar elsku mæðgur :*

  4. Ingibjörg

    25. April 2014

    Gaman að sjá þessar mydir af ykkur mæðgum í þessu fallega landslagi. Ása, takk fyrir okkur í Verona, það var mjög gaman að fá leiðsögn þína um borgina og fara á þennan frábæra veitingarstað.
    Ingibjörg og Árni

  5. Sonja Marsibil

    29. April 2014

    Vá – mikið hafi þið átt góðan dag, ofboðslega heppnar með hvor aðra! <3