Ég er búin að vera að fylgjast með henni Þórhildi Þrándar sem að er hönnuðurinn á bakvið Viðja Jewerly í smá tíma. Mér finnst skartið hennar alveg ofboðslega falleg & akkúrat í mínum stíl, minimalískt og vandað. Skartgripamerkið er glænýtt en hefur strax vakið mikla athygli enda eitthvað fyrir alla að finna hjá henni Þórhildi, nú hefur Hlín Reykdal hafið sölu á merkinu & verður því fagnað vel með teiti í verslun hennar á Fiskislóð 75. Teitið er á morgun, fimmtudag milli 17:00 – 19:00 & vil ég hvetja alla til að kíkja á þetta flotta merki, styðjum við íslenska hönnun!
Hönnuðurinn: Þórhildur Þrándardóttir
Myndir: Saga Sig
Þið finnið mig á Instagram & Snapchat undir:
steinunne
xx
Skrifa Innlegg